Jahérna! Hingað ertu þá komin að lesa um mig. Ég geri nú ráð fyrir að þeir
einu sem ramba á þessa síðu séu vinir mínir (af því að ég hef snúið uppá
hendina á þeim og heimtað að þeir skoði meistaraverkið :) ... en ef svo
ólíklega vildi til að einhver saklaus sál þvældist hingað þá er nú ekki úr vegi
að ég kynni mig.
Ég heiti sem sagt María og er Edwardsdóttir. Ég hef gaman af ferðalögum,
börnum, útiveru og ... NEI NEI bara að grínast ;) Ég ætti nú ekki annað eftir en
að láta slíkt spyrjast út um mig. 'Tölvunörd wannabe' og 'forfallinn IRC-ari'
er miklu nær því að lýsa mér. Annars gengur hálfseint hjá mér að gerast tölvusnillingur
því ég er umkringd gúrú-um sem eru boðin og búin að bjarga mér. Svo er ég alltaf að vonast
eftir happdrættisvinningnum stóra svo ég geti látið stóra drauminn rætast og farið að læra að fljúga.
|
Þá sjaldan að ég er ekki í tölvunni er nokkuð víst að mig er að finna í
góðra vina hópi eða þá með fjölskyldunni. Það er oft glatt á hjalla í litlu kjallaríbúðinni
minni. Vinir mínir eru duglegir að heimsækja mig og það hefur myndast sá skemmtilegur siður
að hittast hér hjá mér og elda og borða saman. Þetta gerum við u.þ.b. einu sinni í viku og
svo sitjum við frameftir kvöldi og spjöllum eða glápum á imbann.
Smelltu á greyið litla hér til að bögga mig :)
|